Persónuleg þjónusta
Ég sérhæfi mig í torf- og grjóthleðslum, ásamt því að taka að mér smærri verk við hellulagnir, viðgerðir og hönnun þar sem aðstæður krefjast sérlausna.
Ég legg áherslu á gæði og vel útfærðar lausnir.
Ég hanna og móta verkið með þér eða vinn eftir teikningum arkítekta eða hönnuða og í samstarfi við þá eftir því sem við á.
Hafðu samband ef þú vilt ræða verk eða fá tilboð.
Með yfir tuttugu ára reynslu hjálpa ég þér að gera þitt verkefni að veruleika!
Torf & grjót
Tek að mér hverskonar verkefni tengd torf- & grjóthleðslu.
Torf & grjóthleðslur
Með því að nýta hleðslur úr torfi og grjóti til að móta umhverfi okkar leyfum við náttúrunni að vera til staðar og taka þátt. Afraksturinn verður fagurt og róandi umhverfi.
Möguleikarnir eru fjölbreyttir;
- hýsi
- veggir
- vörður
- stígar
- legsteinar
- útigrill
- blómapottar
- Sandkassar
Gætu náttúruhleðslur verið rétta lausnin fyrir þig? Ég skoða málið með þér, met aðstæður, finn rétta grjótið og vinn verkið.
Smelltu á portfólíó til að sjá fleiri torf- og grjóthleðsluverkefni
Námskeið og kennsla
Ég er listgreinakennari að mennt og tek að mér kennslu á námskeiðum í torf- og grjóthleðslum. Ég hef unnið með Fornverkaskólanum, Árbæjarsafni og Vistræktarfélagi Íslands við námskeiðshald. Einnig má hér sjá fræðsluerindi um bæinn Hvamm á Völlum sem ég hélt á vegum Þjóðminjasafns Íslands.
Ég hef starfsleyfi kennara og get því kennt á grunnskólastigi ef áhugi er á að gefa krökkum innsýn inn í hleðslulistina.
Hellulagnir
Sérhæfi mig í smærri verkum sem krefjast sérlausna
Hellulagnir sem þarfnast sérlausna og útsjónasemi
Ég hef langa reynslu af hellulögnum og sérhæfi mig í smærri verkefnum sem krefjast sérlausna, hvort sem er tengdar hönnun eða sérlausnum.
Viðgerðir
Viðgerðir sem gefa gömlum aðstæðum nýtt líf
Torf- og grjót, hellulagnir, tréverk
Gamalt efni hefur áferð og sögu sem ekki er hægt að ná fram með nýju efni. Þegar að gamlar hleðslur, hellur, viðarverk er heilt og nýtilegt er oft með útsjónasemi hægt að gera við og endurnýta í aðstæðum, hvort sem það gamla er endurgert í sömu mynd eða nýtt í endurhannaðar aðstæður.
Hönnun
Hönnun og smíði á ýmiskonar sérlausnum sem passa aðstæðum
Oft krefst besta lausnin sérhönnunar og smíði
Ég hef langa reynslu af hellulögnum og sérhæfi mig í smærri verkefnum sem krefjast sérlausna, hvort sem er tengdar hönnun eða sérlausnum.