Um Torf & grjót

Torf & grjót ehf. er í eigu Sigurbjörns Ingvarssonar.

Eftir að hafa starfað sjálfstætt um árabil stofnaði ég félagið Sigurson ehf árið 2011 og hef rekið það síðan. 

Ég gerði svo nafnabreytingu árið 2026, þar sem torf og grjót er meginþema starfseminnar og mitt aðal hugðarefni.

Ég er menntaður myndlistarmaður, en fór snemma að vinna sem verktaki við fjölbreytt verkefni. Ég féll svo fyrir fornverki og hleðslulistinni í Fornverkaskólanum undir leiðsögn Helga Sigurðssonar fyrir tæpum 20 árum.

Ég tek þó einnig að mér fjölbreytt verkefni á sviði hellulagna, hönnunar, smíði og viðgerða.

Fyrir mér er hvert verkefni listsköpun, hvort sem það er myndlist, torf- og grjóthleðslur, námskeið og kennsla, hellulagnir, viðgerðir eða ný smíði.

Sigurbjörn Ingvarsson

Með sköpunarkraft, verkvit og útsjónasemi að leiðarljósi er allt hægt.